Færsluflokkur: Bloggar

Árið 1989

Fyrir tuttugu árum voru aðalleikarar ríkisstjórnarinnar þeir Steingrímur Hermannsson, Ólafur Ragnar Grímsson og Jón Baldvin Hannibalsson. Í stjórnarandstöðu voru sjálfstæðismennirnir Þorsteinn Pálsson og Davíð Oddsson, borgarstjórinn sem þá var ört rísandi stjarna. Önnur áberandi voru til dæmis Jóhanna Sigurðardóttir og Össur Skarphéðinsson var líklegur til að láta að sér kveða, eins og kom á daginn. Þá hafði ung kona sem átti sína fortíð í Kvennalistanum vakið eftirtekt, sú var Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Í stéttabaráttunni voru Jakinn og Bjargvætturinn helstu garparnir, þeir Guðmundur J. Guðmundsson og Einar Oddur Kristjánsson sem nú eru báðir horfnir fyrir hornið. Þriðji stórleikarinn var Ögmundur Jónasson þá nýlega kjörinn formaður BSRB, enda tíðkaðist þá sem nú að velja þekkta fréttamenn í sjónvarpinu til forystu í félagsmálum.

Merkilegt má kalla að nánast allt það fólk sem hér er nefnt er enn á fullu. Bessastaðabóndi fer með stjórnarmyndunarumboðið og uppi í Mosfellssveit situr Jón Baldvin hvar hann mælir sem hinn alvitri maður og horfir reiður um öxl. Allt þjóðfélagið hverfist nú sem fyrr um Davíð, seðlabankastjórann sem á sínum tíma felldi Þorsteinn í formannskjöri í Sjálfstæðisflokknum. Og Þorsteinn birtist okkur nú sem hinn yfirvegaði leiðarahöfundur Fréttablaðsins, sem skilgreinir þjóðfélagið með býsna athyglisverðum hætti og kemur oft með óvænt sjónarhorn á mál.

Jóhanna sem eitt sinn sagði að sinn tími kæmi verður væntanlega forsætisráðherra áður en vikan er úti og Össur er á góðri siglingu. Einasta breytingin sem orðið hefur virðist mér sú að Steingrímur Hermannsson er hættur í pólitík en Guðmundur sonur hans tekinn við keflinu og ætlar fram á hinum fornu veiðilendum föður síns og afa.

Það er ekkert nýtt undir sólinni.


mbl.is Nýtt verk, sömu leikarar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aukaframboðin

Samkvæmt því sem fram kom í fréttum í morgun eru Samfylking og VG ósammála um kjördag. VG vilja kjördag sem allra fyrst og í ágætum bloggpistli segir Ásta Möller þingmaður Sjálfstæðisflokks það vitanlega helgast af því að vinstri grænir vilji ekki gefa nýjum framboðum svigrúm. Með því að undirbúningstíminn sé sem skemmstur sjái VG möguleika á að kaffæra ný framboð í fæðingu. Líklega er þetta rétt. Þannig sagði Steingrímur J. Sigfússon formaður VG fyrir síðustu kosningar efnislega að aukaframboð eins og Íslandshreyfingin væru til þess eins fallin að trufla kosningabaráttuna og þá flokka sem fyrir væru. Aukaframboðin,  sem svo eru nefnd, eru samkvæmt þessu stórhættuleg og þá pólitíkusa sem lengst hafa staðið vaktina er goðgá að trufla.

 


mbl.is Býst við stjórn á laugardag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðinn af Ströndum

Framboð Guðmundar Steingrímssonar í Norðvesturkjördæmi er tiltölulega rökrétt. Föðurafi hans, Hermann Jónassonar, var frá Syðri-Brekkum í Blönduhlíð í Skagafirði og þar var faðir hans Steingrímur Hermannsson í sveit sem strákur. Steingrímur var frá 1971 til 1987 þingmaður Vestfirðinga. Hermann Jónasson var lengst þingmaður Strandamanna og þar nyrða lifa enn ýmsar helgisagnir um manninn.

"Þið trúið heitar á Hermann en Guð og þó sést hann hér sárasjaldan," sögðu frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins við framsóknarmenn á Strandasýslu þegar þeir skynjuðu dræmar undirtektir. 

"Ja, við trúum nú samt á Guð - og hann höfum við aldrei séð," svöruðu framsóknarkarlarnir þá á móti.

Guðmundur Steingrímssonar á því góðs að vænta á sínum nýju pólitísku veiðilendum.

 

 


mbl.is Guðmundur: Stefnir á fyrsta sætið í NV-kjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Furðulegar fyrirframfréttir

Síðustu sólarhringa hafa ýmsir þingmenn Samfylkingar og VG verið nefndir sem líkleg ráðherraefni - og tilgreint hefur verið hvaða embættum þeir muni gegna. Össur á samkvæmt því sem fram hefur komið að taka við öllum atvinnuvegaráðuneytunum, Steingrímur verður fjármálaráðherra, Ögmundur tekur við heilbrigðismálunum, Katrín Jakobsdóttir fer í menntamálin og svo framvegis.

Allt er þetta þó næsta marklítið að ég tel. Nefna má, að í stjórnarmyndunarviðræðum 1983 var gert ráð fyrir því, allt fram á síðustu stundu, að Halldór Ásgrímsson tæki við fjármálaráðuneyti en niðurstaðan varð samt sú að hann fór í sjávarútvegsmálin. Og í þeim sömu viðræðum varð Steingrímur forsætisráðherra sakir þess hve bakland Geir Hallgrímssonar innan Sjálfstæðisflokksins var veikt.

Við myndun ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar 1988 var Guðrún Helgadóttir nefnd sem ráðherraefni og þótti sumum einboðið að hinn dáði barnabókahöfndur settist í stól menntamálaráðherra. DV birti vorið 1991 frétt um að Björn Bjarnason yrði heilbrigðisráðherra og fæstir sáu fyrir að Halldór Blöndal kæmist í ríkisstjórn eftir hraplegt gengi í kjördæmi sínu, þar sem hann fékk fjölda útstrikana. Svona mætti áfram tíunda ýmis dæmi af fyrirframfréttum um skipan ráðherrastóla. Menn skyldu því fara varlega að taka slíkum fréttir alvarlega nú.

 


mbl.is Fundað um stjórnarmyndun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fram úr sjálfum sér!

Fram hefur komið að forseti Íslands tók sé frest til morguns eftir viðtöl sín við formenn stjórnmálaflokkanna í kvöld. Í fyrramálið, þriðjudag, ætlaði hann að gera uppskátt með hver fengi umboð til stjórnarmyndunar. Vinstri grænir eru hins vegar komnir á fulla ferð og eru að leggja línurnar "... fyrir væntanlegar stjórnarmyndunarviðræður á morgun," eins og í viðhengri frétt segir. Einhverjir hefðu kannski beðið eftir því að forsetinn kynnti ákvörðun sína - ef ske kynni að utanþingsstjórn embættismanna yrði raunin. Kommarnir eru komnir fram úr sjálfum sér! Á bloggsíðum manna í VG má sömuleiðis sjá að þeir telja sig raunar strax komna í ríkisstjórn.

 

 

 


mbl.is VG leggur línurnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfélaglegur friður

Þegar vinstri stjórn Hermanns Jónassonar sprakk seint á árinu 1958 beitti Ásgeir Ásgeirsson forseti Íslands sér í þeim viðræðum sem þá fóru í hönd. Hann kom minnihlutastjórn Emils Jónssonar til valda, en hennar stóra verkefni var breyting á kjördæmaskipuninni til þess háttar sem gilti fram á síðustu ár. Ári síðar tók Viðreisnarstjórnin við og átti Ásgeir ósmáan þátt í myndun hennar.

Í embættistíð Kristjáns Eldjárns þurfti forseti oft að beita sér í stjórnarmyndunarviðræðum; sem helgaðist fyrst og síðast af miklum efnahagsvanda Íslendinga. Árið 1980 var Kristján raunar kominn á fremsta hlunn með myndun utanþingsstjórnar eins og lesa má um í bók Guðna Th. Jóhannessonar, Völunarhús valdsins. Í embættistíð Vigdísar Finnbogadóttur gengu stjórnarmyndunarviðræður yfirleitt liðlega fyrir sig og sama hefur verið uppi á teningnum í Bessastaðatíð Ólafs Rangars. Það er í raun fyrst núna sem eitthvað reynir á hann við að tryggja þjóðinni starfhæfa ríkisstjórn. 

Þau skilyrði sem Ólafur setur stjórninni þurfa í raun ekki að koma á óvart. Þau eru efnislega hin sömu og hann hefur áður sagt. Í dag sagði hann að ný ríkisstjórn þyrfti að skapa samfélagslegan frið. Þetta er í góðu samræmi við nýársávarp forsetans þar sem hann sagði að við þyrfum að "... í kjölfar hinnar erfiðu reynslu að gefa okkur tíma til að móta sáttmála um samfélagið ... Í slíkri umfjöllun hefðu allir ótvíræðan rétt til að láta í sér heyra, bæði málfrelsu og tillögurétt. Ef vel tækist til kæmi til greina að sáttmálinn yrði staðfestur í sérstakri atkvæðagreiðslu því gerð hans myndi byggja á valdinu sem er hjá fólkinu í landinu, þjóðinni sjálfri."


mbl.is Skapa þarf samfélagslegan frið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hörður axli ábyrgð!

Mörg falleg lögin hefur Hörður Torfason sungið og af því hef ég alltaf ráðið að hann sé hinn vænsti maður. En lengi má manninn reyna. Ummæli Harðar um veikindi forsætisráðherra gefa ástæðu til að ætla að þessi foringi Radda fólksins sé ekki með öllum mjalla. Ég tel að Hörður eigi að axla ábyrgð eftir þessa yfirlýsingu sína og stíga til hliðar úr forystu andófshreyfingarinnar.

 


mbl.is Hænuskref í rétta átt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á stórum stundum

Oft er sagt að á stórum stundum og þegar vofveiflegir atburðir gerast sameinaðist íslenska þjóðin í einni sál. Vonandi er það ekki liðin tíð. Við núverandi aðstæður er mótmælum í raun sjálfhætt. Hverju þarf að mótmæla? Boðað hefur verið til kosninga, ríkisstjórnin er á förum og báðir formenn stjórnarflokkanna fársjúkir og á leið út af hinu pólitíska sviði. Algjör uppstokkun er framundan. Á þessum tímapunkti er samstaða þjóðarinnar mikilvægust. Með sundrungu sökkvum við enn dýpra. Geir H. Haarde og fjölskyldu hans sendi ég hlýjar kveðjur og óskir um bata. Geir þekki ég lítið. Get þó sagt eitt: það er hlýr svipur í augunum hans sem oft eru sögð spegill sálarinnar.

 


mbl.is Geir: Kosið í maí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gengið á lagið!

Kjarasamningar eru undirritaðir og laun eru hækkuð. Verslanir nýta sér lagið og hækka verð vöru og þjónustu. Kaupmátturinn hrynur. Vextirnir eru í hæstu hæðum, verðbólgan fer sem logi um akur og lán bundin lánskjaravísitölu hækka dag frá degi. Algjör óvissa ríkir um framhaldið og valda þar miklu þær viðsjár sem nú eru í pólitíkinni. Á þessum tímapunkti er tel ég því mikilvægast að menn hreinsi borðið og boði til nýrra kosninga. Öðruvísi sköpum við ekki friðvænlegt andrúmsloft í þjóðfélaginu, sem er forsenda þess að við náum einhverjum tökum á hrikalegum vandamálum. Læt þó liggja milli hluta hvort nýrri ríkisstjórn takist betur upp en þeirri sem nú situr. Mikilvægast er að lægja öldurnar.

 

 


mbl.is Kaupmáttur minnkar um 8,2%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Súrefni samfélagsins

Gylfi Arnbjörnsson núverandi forseti ASÍ lýsti á sínum tíma yfir fylgisspekt samtakanna við Samfylkinguna og Ingibjörgu Sólrúnu. Slíkar yfirlýsingar voru og eru fáránlegar. Fjöldahreyfing launafólks er skipuð fólki sem hefur jafn ólíkar skoðanir á stjórnmálum og það er margt. Að gera ASÍ að einhverskonar útibúi Samfylkingarinnar er jafn fáránlegt og að Samtök atvinnulífsins gerðust með yfirlýsingingum sínum óformleg deild innan Sjálfstæðisflokksins. Að undanförnu höfum við svo séð til Bændasamtakanna með fundaherferð gegn Evrópusambandinu, enda þótt ætla megi að bændur hafi jafn ólíkar skoðanir á Evrópumálum og þeir eru margir. Það væri sjálfsögðu kurteisi af hálfu bændaforystunnar að kynna viðhorf bæði með og á móti aðild að ESB. Að þessu orðum samandregnum vildi ég því sagt hafa að afdráttarlausar yfirlýsingar þverpólitískra hagsmunasamtaka eru mjög óviðeigandi. Krafa ASÍ um þingkosningar nú er þessu marki brennd. Alþýðusambandið getur ekki stöðu sinnar vegna krafist þingkosninga, enda þó svo einstaka forystumenn þeirra samtaka - líkt og annara - geti og eigi að sjálfsögðu að viðra sín persónulegu viðhorf. Frjáls umræða er súrefni lýðræðislegs samfélags.

 


mbl.is ASÍ vill nýja ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband