Færsluflokkur: Bloggar

Fall er fararheill!

Sigur Sigmundar Davíðs í formannskjöri í Framsóknarflokknum kemur ekki á óvart. Ég var á fundinum í gær sem tíðindamaður þessarar bloggsíðu og fylgdist með erindum formannsefnanna. Ekki fór á milli mála að Sigmundur náði sálinni í salnum og stórir hlutir voru að gerast.  Hann talaði beint í hjartastað fólksins. Að sigurinn nú yrði jafn afdráttarlaus og raun ber vitni kemur hins vegar á óvart. Í viðtölum bæði fyrir og eftir þingið hefur Sigmundur mest svarað í almennum frösum, við eigum enn eftir að sjá hvað hann hyggst raunverulega fyrir sem formaður í Framsóknarflokknum. Maðurinn er óskrifað blað. Að vera alsendis saklaus af innanflokksátökum og mistökum síðustu ára er Sigmundi Davíð þó óneitanlega til tekna. Hvað varðar mistökin við talningu í formannskjörinu vildi ég það eitt sagt hafa, að fall er fararheill!

Picture 16690

mbl.is Sigmundur kjörinn formaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breytt byggðastefna

Á öllum tímum í mannkynssögunni hefur fólk flutt sig um set í leit að betra lífi. Okkur eiginlegt að flýja vondar aðstæður í von um að grasið sé grænna hinu megin. Stóra verkefnið sem stjórnmálamenn þurfa að takast á við í þessu samhengi er að gera Ísland aftur byggilegt. Við þurfum að komast undan skuldaklafanum, sigrast á atvinnuleysinu, vinna bug á verðbólgu og þannig áfram telja. Öll önnur mál eru afgangsstærðir. Byggðastefna dagsins í dag snýst um að gera landið aftur byggilegt. Við megum ekki við því missa ungt fólk úr landi og má þá einu gilda hvar það býr. Til þessa hefur hefur inntak byggðamálanna, sem svo eru nefnd, snúist um þá rétthugsun að halda öllum útkjálkum í byggð með því að leggja vegi, grafa jarðgöng og svo framvegis. Nú er endurreisn þjóðfélagsins eftir hrunið hins vegar orðin að byggðamáli - þar sem landið allt er undir. Við megum illa missa ungt fólk úr landi. 

 


mbl.is Aukinn útflutningur á búslóðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrirmyndin er Obama

Nýkjörinn forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, sem tekur við veldissprotanum næsta þriðjudag, hefur látið þau boð út ganga að hans fyrsta verk verði að grípa til róttækra aðgerða til að bjarga hag heimilanna þar í landi. Miklum fjármunum verður dælt inn í hagkerfið til að bjarga því sem verður. Vissulega eru aðstæður í Bandaríkjunum og hér heima fjarri því sambærilegar, en mikið væri nú annars huggulegt ef ríkisstjórn Geirs H. Haarde gripi til einhverra sambærilegra ráðstafana. Á Íslandi eru þúsundir fjölskyldna í sárustu neyð vegna verðtryggingar húsnæðislána og gjaldeyrislána sem hækkað hafa von úr viti, hugsanlega vegna brasks íslensku bankanna til að bæta sína eigin stöðu. Ríkisstjórnin gerir hins vegar fátt og smátt til að mæta kröfum þessa fólks - og nú er svo komið að andóf almennings virðist orðið sterkara pólitískt afl en hinir hefðbundnu stjórnmálaflokkar. Völdin eru að leka út úr höndum ríkisstjórnarinnar, sem vel mætti taka sér hinn þekkilega Obama sér til fyrirmyndar í röggsömum vinnubrögðum.


mbl.is 100 milljarðar dala til að taka á vanda heimilanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð gagnrýni prestanna

Margt í hugmyndum heilbrigðisráðherra um uppstokkun og sameiningu sjúkrastofnana er ágætt og vel brúklegt. Betri samgöngur opna ýmsa möguleika í því efni. Sumt í tillögunum gengur þó tæplega upp. Vestmannaeyjar eru afskekktar og fyrir vikið er nauðsynlegt að halda þar úti sjálfstæðu sjúkrahúsi. Sameining við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi er illa framkvæmanleg. Sama gildir um Patreksfjörð. Bokkurn hluta ársins eru sunnanverðir Vestfirðir einangraðir samgöngulega og sameining við Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði því ógerleg. Málið er ekki jafn einfalt og ætla mætti. Og aftur vara ég við því að kennisetningin um hagkvæmni stærðarinnar verði allsherjarlausn. Litlar einingar geta plummað sig prýðilega og verið hagkvæmar. Það er gott að sjá pesta landsins blanda sér í umræðuna um niðurskurð í heilbrigðiskerfinu. Prestarnir breyta eins og Frelsarinn forðum; eru gagnrýnir á samtíð sína. Standa með þeim sem eiga undir högg að sækja. Vonandi stíga þeir fleiri fram þá með vel rökstuddar tillögur. Segi eins og í Borðsálmi Jónasar, Mættum við fá meira að heyra.
mbl.is Vinnubrögðin nísta inn að hjarta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Upptaktur einkarekstrar

Núverandi skipan heilbrigðisþjónustu í landinu var sett á laggirnar þegar aðstæður voru allt aðrar. Þegar samgöngur batna er hins vegar eðlilegt að það fyrirkomulag sem gilt hefur um rekstur heilsugæslu og sjúkrahúsa verði endurskoðað og því breytt, ef ástæða er til. Reyndar mætti tiltaka ýmis fleiri svið í ríkisrekstri þar sem nýir tímar og tækni skapa ýmsa möguleika til hagræðingar. Það ætti ekki að vera nein goðgá að reka eina heilbrigðisstofnun í hverjum landsfjórðungi, það er ef í hverjum þéttbýliskjarna er að minnsta kosti lágmarksþjónusta svo öryggi íbúa sé tryggt. Hitt skyldu menn þó hafa í huga að kenningar um hagkvæmni stærðarinnar eru oftar en ekki merkingarlítið þvaður, eins og reynslan hefur sýnt. Eitthvað segir mér þó að fiskur leynist undir steini í þeim áætlunum um sameiningu heilbrigðisþjónustu sem nú liggja fyrir; það er að til standi að skapa aukið svigrúm fyrir einkarekstur. Upptakturinn hefur verið sleginn. Gefum okkur svona eitt ár héðan í frá - þá verður búið að koma hrinda stefnumörkun um einkarekstur í heilbrigðisþjónustunni í framkvæmd!


mbl.is Svæðið stórt og samlegðaráhrifin mismikil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ebeneser og efnahagsundrið

Tók bryggjurúntinn sl. sunnudag og hitti þá strákana á Faxa sem voru að gera sjóklárt fyrir loðnuna. Draga næturnar um borð. Þeir sögðu mér hvernig veiðum yrði háttað og ég þóttist greina blik í augum þeirra. Ebeneser Guðmundsson stýrimaður var fullur eftirvætingar. Mikið er undirliggjandi. Og nú eru þeir á Faxa búnir að finna loðnu! Loðnuvertíðin hefur þegar best lætur verið að skila þjóðarbúinu tólf milljarða kr. tekjum. Og nú er loðnan fundin og ef allt fer vel mun gjaldeyririnn fossa inn í landið. Allt fyllist af peningalykt. Eftir hrunið hafa sjónir manna aftur beinst að sjávarútvegi, landbúnaði, ferðaþjónustu og iðnaði; frumvinnslugreinunum sem skipta svo miklu fyrir afkomu okkar. En loðnan er duttlungafull og vekur oft undrun manna. Íslenska efnahagsundrið.

 

 

Ebeneser Guðmundsson - EyjumFaxi RE 001

 


mbl.is Fundu loðnu undan Langanesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í minningu vinar

Mikið óskaplega getur óhamingjunni orðið margt að vopni. Í einni svipan er af slysförum horfinn frá okkur fjölskyldufaðir, traustur vinur, frábær og glaðvær félagi, öflugur málsvari hins réttláta og góða, snjall maður og útsjónarsamur sem mér finnst hafa verið í geislum sólar alla sína ævi. Við kynntumst fyrir rúmum þrjátíu árum og áttum samfylgd upp frá því. Fyrst sem skólafélagar og var hann seinna maður sem ég gat leitað til með mín veraldlegu mál. Lögfræðingurinn hafði svör á reiðum höndum. Því var ekki að ófyrirsynju að þessum frábæra manni væru falin svo mörg mál til úrlausnar í trausti þess að þau kæmust í heila höfn. Því er skaðinn óbærilegur fyrir svo marga, mest fjölskylduna sem nú syrgir.

Við töluðum saman síðast á sunnudag. Fyrir löngu var komin á sú hefð á, að við skiptumst á kveðjum á afmælisdögum okkar. Ég spurði hver staðan væri og hvort væri að birta yfir þjóðlífinu eftir hrakninga síðustu mánuða. Hann sagði svo vera. "Við getum ekki leyft okkur að hugsa öðruvísi," var svarið. Einföld orð sem örlögin hafa fengið nýtt inntak og merkingu. 

Guðjón Ægir Sigurjónsson var drengur góður.

Guðjón Sigurjónsson

Óvenjulegt fjáröflunarstarf

Fréttir um slys af völdum fikts með flugelda eru árvissar. Aldrei er of varlega farið og margir bíða flugeldaslysa aldrei bætur. Kynugt er jafnframt að fírverkið er í flestum tilvikum keypt af deildum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Vörnum gegn flugeldaslysum virðist því vera nokkuð ábótavant. Skömmu fyrir jól lagði alþingismaður til að fólk sýndi ráðdeild og sparaði við sig flugeldakaup sem framkvæmdastjóri Slysavarnarfélagsins Landsbjargar tók óstinnt upp. Sjálfur tel ég að setja flugeldasölu verulegar skorður strax um næstu áramót og rétt er enginn skjóti þessum rokblysum upp, nema menn sem hafa til þess fullkomna kunnáttu. Jafnframt að slysavarnarfólk rói á önnur mið í fjáröflunarstarfi. Reyndar er mjög óeðlilegt að þar sem hjálparsveitunum er ætlað hlutverk í hinum opinbera almannavarnarkerfi, að þær eigi allt sitt undir velvild landans hvað varðar fjáröflun. Aðrir þeir sem koma að almannavörunum og þar með samfélagsþjónustu ættu þá að fjármagna starfsemi sína með sambærilegum hætti; lögreglan til dæmis með kökubasar og sjúkraliðsmenn ættu að ganga í hús og selja rækjur!


mbl.is Óvíst um sjón eftir flugeldafikt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Græni karlinn pönkast ekki

Ár og síð stendur hann vaktina á Austurvelli og koparinn sem hann er gerður úr hefur tekið á sig grænan blæ, rétt eins og þökin á konungshöllum Kaupmannahafnar. Að vísu tók einhver sig til á dögunum og klæddi karlinn í bleika mussu. Slíkt er þó aðeins fótnóta í samanburði við allt hitt, það er að enn í dag getum við lært sitthvað af Jóni forseta Sigurðssyni. Las ævisögu þessa áhrifamikla Arnfirðings nýlega. Á milli línanna liggur að maðurinn hefur verið frekar leiðinlegur. Látum það liggja milli hluta. Meginmálið er að í allri sinni baráttu sýndi Jón forseti það góða fordæmi að vinna að framgangi mála með því einu að beita skýrum rökum. Fór aldrei fram með ofsa eða ofbeldi. Barðist einarðlega fyrir sjálfstæði þjóðarinnar, sem náist á endanum - þá þegar Jón var reyndar horfinn fyrir hornið. Þori að fullyrða að karlinn á Austurveli hefði aldrei hent eggjum á Alþingishúsið eða pönkast á Hótel Borg. Með háttvísum baráttuaðferðum náði Jón árangri - sem mótmælendur mættu gjarnan hafa í huga.

 

 


mbl.is Umræðuhættir á netinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þröngsýn þúfnapólitík

Þingmönnum sem eiga bakland sinn í kjördæmum landsbyggðarinnar gengur efalítið gott eitt til, þegar þeir stíga á stokk og krefjast aðgerða vegna til að mynda hærra verðs á rafmagni og áburði, vondum vegum, póstdreifingu og svo framvegis. Þeir bera við að hin ótrúlegustu mál geti leitt til byggðaröskunar eða viðlíkra hörmunga. Gleyma því þá að verð á flestu hér á höfuðborgarsvæðinu hefur líka hækkað og fjölmargt mætti vera í betra lagi. Sífellt mal þingmanna af landsbyggðinni um meinta erfiðleika þar, er bjarnargreiði. Það er fínt að búa úti á landi og þingmenn mættu oftar ræða um það. Þeir kjósa hins vegar að gera vankantana að sérstökum baráttumálum sínum og tala heilu héruðin niður. Stjórnmálamenn, eins og Jón Bjarnason, telja kjósendur úti á landi oft á tíðum sérstaka bandamenn sína vegna baráttu þeirra fyrir sértækum hagsmunum. Sjálfum finnst mér hins vegar mikilvægara að á Alþingi sitji víðsýnt fólk sem horfir til hagsmuna fjöldans - þó svo þröngsýn þúfnapólitík hljómi sem tónlist í eyrum einhverra.

 


mbl.is Vill láta fresta hækkun á raforkuverði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband