Færsluflokkur: Bloggar

Kona býður góðan dag

Hitti í hádeginu á móts við Fjölbrautaskólann í Ármúla unga konu sem heilsaði mér glaðlega. Ég tók undir kveðju hennar, brosti og spurði hvar leiðir okkar hefðu skarast fyrr. "Hvergi, ég er að gera athugun í sálfræðiáfanga í skólanum og bíð fólki góðan daginn og tel hve margir taka undir," sagði konan og brosti. Ég sá að byggðamerki Sauðárkróks var á bílnum hennar og fór þá að spyrja hana um Skagfirðinga sem ég þekki marga. Úr þessu varð sem sagt hið skemmtilegasta spjall sem aftur segir að bros getur dimmu í dagsljós breytt - rétt eins og Einar Ben orti forðum.

 


Ögmundur er heill og sannur!

Ég hitti Ögmundur Jónsson í morgun sem þá var á leið til síns fyrsta vinnudags í heilbrigðisráðuneytinu. Átti leið fram hjá og tók mynd af kappanum á tröppum ráðuneytisins. Það var létt yfir Ögmundi, sem ég þekki af góðu einu. Hann er heill og sannur í öllu sínu og er ötull talsmaður þeirra sem höllum fæti standa. Ég hef að vísu stundum haft efasemdir um hvernig og hvort sú últra félagshyggja sem hann boðar gangi upp, en það er víst önnur saga.

Ögmundur er í ágætu viðtali við Illuga Jökulsson í bókinni Lífsviðhorf mitt sem kom út árið 1991. Þar segir hann margt ágætt, sem á fullkomlega við enn í dag. Þar á meðal þetta:

"Auðvitað eigum við að spyrja á hvaða vegi menn séu staddir þegar er talað um að eitt helsta forgangsverkefni í samfélagi okkar sé að efla kostnaðarvitund sjúklinga. Ég heimsótti fullorðinn mann á sjúkrahús um daginn, góðan vin minn sem á langan vinnudag að baki. Og ég fór að hugsa um það, þegar ég horfði á hann liggja fársjúkran í sjúkrarúmi sínu, hvort verið gæti að vandamálin í íslensku þjóðfélagi stöfuðu af því að hann hefði ekki næga kostnaðarvitund, að hann gerði sér ekki næga grein fyrir hvað það kostaði að hafa hann liggjandi þarna. Kostnaðarvitund og sjálfsáhætta, þetta eru orðin sem nú eru notuð um sjúklinga. Þetta er siðlaust."

 

Ögmundur 020209

mbl.is Innlagnargjöld afnumin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krafan um endurnýjun

Þau samskipti sem ég hef átt við Ásdísi Höllu Bragadóttur eru fín, hvar ég hef leitað til hennar sem blaðamaður um svör við ýmsum spurningum sem uppi hafa verið. Hún hefur jafnan brugðist vel við og það sem meira er; ég hef jafnan haft tilfinningu fyrir því að það sem hún segir sé meint af heilum hug. Hún vill samfélagi sínu vel, sem er stjórnmálamönnum afar mikilvægt. En þetta gildir ekki um alla. Í öllum stjórnmálaflokkum er þessa dagana uppi rík krafa um endurnýjun eins og komist er að orði. Þetta þýðir að allskonar apakettir eru nú komnir fram á sviðið og ætla sér stóra hluti í pólitíkinni. Minni spámenn sem eru hugmyndasnauðir, lítilsigldir og hafa beðið marga ósigra í lífinu, en senda nú frá sér tilkynningar um að margir hafi komið að máli við sig og því liggir þeir undir feldi, eins og Ljósvetningagoðinn forðum.

 


mbl.is Ásdís Halla metur stöðuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smáfrétt um smámál

Smáfrétt um enn minna mál, sem varla tekur tali. Lögregla og slökkvilið sjá ástæðu til að nefna þau ýmsu smámál sem þeir sinna en sleppa öðru - af óskilgreindum ástæðum. Eins og ég hefi áður lagt til á þessum sama vettvangi; fjölmiðlar eiga að birta fréttir af því hvað mörg börn fæðast á sjúkrahúsunum á hverjum sólarhring og sömuleiðis hve margir gefa upp öndina. Það eru raunverulegar fréttir.
mbl.is Slys við N1 í Fossvogi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í blokk í Vesturbænum

Góður vinur skaut að mér að ráðherralisti nýju ríkisstjórnarinnar væri líkastur því að maður stæði í anddyri fjölbýlishúss í vesturborginni og væri að renna yfir nöfnin á dyrabjöllunum. Hér eru á hverju strái rauðvínskommar, listafólk og háskólaborgarar, en slíkt fólk eru einskonar holdtekjur póstnúmers 107. Sjáið listann:

Jóhanna Sigurðardóttir, flugfreyja
Össur Skarphéðinsson, líffræðingur
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, leiðsögumaður
Kristján Möller, íþróttakennari
Steingrímur J. Sigfússon, jarðfræðingur
Katrín Jakobsdóttir, bókmenntafræðingur
Ögmundur Jónasson, sagnfræðingur
Kolbrún Halldórsdóttir leikkona
Gylfi Magnússon, dósent
Ragna Árnadóttir, lögfræðingur.


mbl.is Stjórnarskiptin vekja athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórn sálfræðihernaðar

Ný ríkisstjórn undir forsæti Jóhönnu Sigurðardóttur ætlar sér stóra hluti. Á fjölmörgu er tæpt í stefnuyfirlýsingu stjórnarinnar sem kynnt var á blaðamannafundi í dag og ber þar hæst aðgerðir í efnahagsmálum. Ríkisstjórnin tekur fram að efnahagsstefnu sína byggi hún á fyrirliggjandi áætlun stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem þýðir á mæltu máli að Vinstri grænir hafa þurft að éta ofan í sig stóru orðin. Um aðgerðir í þágu heimila og fyrirtækja - og reyndar fleira - má segja að þær séu mestan part almennt orðað hjal sem allir geta í raun verið sammála. Enginn getur til dæmis sett sig upp á móti því að leitað verði leiða til að örva fjárfestingu innlendra og erlendra aðila, né að ríkisstjórnin sjái til þess að fjármálastofnanir gangi hratt og örugglega til verks við að greiða úr vanda lífvænlegra fyrirtækja. Þeir rúmlega áttatíu dagar sem ríkisstjórnin hefur til stefnu eru ekki langur tími, en ýmsu má þó koma í gegn. Mestu skiptir hvað varðar árangurinn að ríkisstjórnin sendi frá sér strax á morgun jákvæð frá sér skilaboð - sem aftur getur vakið þjóðina af dásvefni. Sálfræðihernaður er það sem gildir.

Jóhanna og Steingr.

mbl.is Slá skjaldborg um heimilin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Embættismaður verður ráðherra

Völd embættismanna eru mikil. Stundum er talað um grandvara embættismenn sem megi ekki vamm sitt vita, enda fylgi þeir bókstaf laganna og ekki öðru. Til skamms tíma og jafnvel enn er því haldið á lofti að goðgá sé að gagnrýna þá sem gegna opinberum störfum. Þetta fólk sé aðeins að rækja starf sitt og sinna skyldum sem eru ljúfar og leiðar eftir atvikum. Að þessu kveður meira að segja svo rammt að segja má að embættismenn séu alfriðaðir rétt eins og æðarfuglinn. Þetta sjónarmið er auðvitað fráleitt. Við eigum og verðum - sé til þess ástæða - að gagnrýna embættismannakerfið - enda er frjáls umræða súrefni lýðræðislegs þjóðfélags. Ný ríkisstjórn segist vilja endurbætur í stjórnsýslunni og aðgerðir " ... í þágu aukins lýðræðis og opins og heiðarlegs samfélags," segir og það er orðað í verkefnaskrá hennar. Einmitt þess vegna finnst mér algjörlega fráleitt að dubba ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytisins, Rögnu Árnadóttur, í hlutverk ráðherra. Enginn hefur kosið þá konu og fæstir vita hver hún er - og því er fráleitt halda því fram að hún sæki umboð sitt til þjóðarinnar

 


mbl.is Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð Birgitta

Fjöllistakonan Birgitta Jónsdóttir hefur þrjú næstliðin föstudagskvöld verið kvöldgestur Jónasar Jónassonar í ágætum útvarpsviðtölum. Í fyrrakvöld ræddi hún meðal annars um sjálfsvíg og kom þar atriði sem mér finnst vert að vekja athygli á. Þar sagði hún að ekki mætti álasa þeim sem tæki líf sitt um sjálfselsku og eigingirni, eins og oft er gert. Sá sem tæki líf sitt væri einatt helsjúk manneskja sem rokkaði milli heima skynsemi og fjarstæðu. Mér finnst þetta skynsamlega mælt hjá Birgittu, sem hefur birst mér í þáttum Jónasar sem vel meinandi manneksja með góðar pælingar en ekki rugludallur og atvinnumótmælandi - eins og ég áður taldi.

 


Kraftaverk eða misheppnaðar auglýsingar?

Þegar Vilmundur Gylfason tók við embætti dóms- og menntamálaráðherra í minnihlutastjórn Benedikts Gröndal í desember 1979 kom hann með miklar yfirlýsingar um hvað stjórnin hyggðist fyrir á þeim fáum mánuðum sem hún hafði til stefnu. Bylta átti og breyta samfélaginu og þá sérstaklega á vettvangi dómsmálaráðuneytis. Brösulega tókst til og Vísir nefndi aðgerðir ráðherrans "misheppnaðar auglýsingar". Það má því kalla skynsamlegt þegar Steingrímur J. Sigfússon kemst svo að orði að best sé að ríkisstjórnin lofi engum kraftaverkum á þeim 83 dögum sem hún hefur til stefnu. Hitt er þó kýrskýrt, að þjóðin mun gera skýra kröfu til nýrrar ríkisstjórnar um tiltekt í Seðlabankanum, lægri vexti og nauðsynlegar aðgerðir svo bankarnir geti veitt eðlilega þjónustu. Mikilvægast er þó kannski að þjóðin fái svör svo óvissan sé frá. Endurreisn hins nýja Íslands hefst ekki fyrr en grundvöllurinn er ljóst. Takist nýrri ríkisstjórn undir forsæti Jóhönnu Sigurðardóttur þetta ekki er illa af stað farið og Guð forði okkur frá misheppnuðum auglýsingum - sem ég því miður óttast.

 

 


mbl.is Lofum engum kraftaverkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir sinn snúð

Í fréttum síðasta sólarhringinn hefur gætt nokkurrar taugaveiklunar vegna þeirra sjálfsögðu fyrirvara sem Framsóknarflokkurinn setur, vegna stuðnings við vinstri stjórnina sem nú er að fæðast. Eðlilega vilja framsóknarmenn skerpa á tilteknum atriðum enda hefur komið fram að efnahagstillögur þær sem Samfylking og VG settu gengu ekki upp, að mati velþekktra hagfræðinga. Og eðlilega vill Framsókn fá eitthvað fyrir sinn snúð, þótt meginmálið sé auðvitað að nú þegar verði farið í aðkallandi aðgerðir í þágu fyrirtæka og heimila sem er að blæða út. Hvort ríkisstjórn sem starfa mun í þrjá mánuði tekst slíkt er hins vegar allt önnur saga.


mbl.is Stjórn mynduð í dag eða á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband