Færsluflokkur: Bloggar

Hlini sullar saman!

Heitstrengingar þær og góðu orð sem er að finna í yfirlýsingu Hlina Melsteð Jóngeirssonar eru um margt dæmigerðar fyrir frambjóðendur. Öllu er sullað saman og greinilegt að frambjóðandinn þekkir ekki hvað er á verksviði Alþingis. Löggjafasamkoman setur okkur lög og sjálfsagt getur Hlini lagt þar margt ágætt af mörkum. Hins vegar hafa sveitarfélögin algjörlega frítt spil varðandi leik- og grunnskólamál og hvort börn fái eina fría máltíð á degi hverjum. Annars má benda á að hádegisverðurinn er aldrei ókeypis, eins og Hannes Hólmsteinn segir. Mér sýnist frambjóðandinn hins vegar ekki líklegur til neinna stórræða, úr því hann þekkir ekki betur til verkaskiptingar ríkis og sveitarfélaga en raun ber vitni.


mbl.is Hlini óskar eftir 2. sæti í SV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óbærilegu fréttirnar

Næstu vikurnar munu stjórnvöld kappkosta að gera lítið úr flestum fréttum. Mál verða þæfð, óþægilegum ummælum svarað með því að segja blaðamenn hafa haft rangt eftir, ráðherrar munu röfla um að þeir hafi takmarkað umboð sitjandi í starfsstjórn og gagnrýni stjórnarandstöðunnar verður lágstemmd. Enda gera sjálfstæðismenn sér grein fyrir að þeir eiga ósmáan þátt í fallinu sitjandi í ríkisstjórn sl. áján ár. Ekki stórmál, segir Jóhanna Sigurðardóttir um bréfið frá AGS. Fleiri dæmi í þessum dúr má tína til. Okkur er óbærilegt að hafa í landinu ríkisstjórn sem þorir ekki að segja sannleikann um hræðilegan efnahagsvanda þjóðarinnar vegna þess eins að kosningar eru í nánd. Enn óbærilegri verður staðan svo eftir kosningar þegar ný ríkisstjórn er tekin við og óþægilegu málin dregin fram sem ekki má ræða nú.

 


mbl.is Ekki stórmál, segir Jóhanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fordómafullur Kristinn?

"Að jafnaði er viðkomandi búinn að stofna heimili og koma sér upp fjölskyldu," segir Kristinn H. Gunnarsson hér í viðtalinu. Í þessum orðum liggur eins og það sé einhverskonar skylduverk að eignast börn og buru. Þingmaðurinn virðist ekki horfa til þess að þúsundir einstaklinga róa einir á báti, hverjar svo sem ástæður þess eru. Sé ég ekki að misskilja Kristinn er hann fordómafullur gangvart þeim sem ekki hafa "komið sér upp fjölskyldu". Tillaga þingmannsins er hins vegar, sem hér er viðhengd, alls góðs makleg því Kiddi sleggja er einn fárra sem á þingi situr sem hugsar út fyrir rammann.

 


mbl.is Aukin menntun svar við atvinnuleysinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sturla upplýsi um fjárhagsstöðu sína!

Ég hef áður nefnt á þessum vettvangi að flest þeirra nýju þeirra nýju framboða sem boðuð hafa verið, séu dæmd til andvana fæðingar. Flestir sem ætla sér á þing á þeirra vegum verða fengnir á framboðslista þeirra flokka sem fyrir eru, þá undir þeim formerkjum að stefnumálum viðkomandi verði þar gert hátt undir höfði. Sturla hefur í viðtölum lýst bágri fjárhagsstöðu sinni í kjölfar hremminga í efnahagslífinu. Því finnst mér sjálfsagt að vörubílstjórinn herskái upplýsi kjósendur nákvæmlega um fjárhagsstöðu sína. Skuldir svipta menn frelsi og sjálfum finnst mér ótækt að í framboði séu - hvað þá sitji á þingi - menn sem hafa misst sjálfstæði sitt til lánadrottna sem hafa á þeim öll tök.

 

 


mbl.is Sturla í Frjálslynda flokkinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kominn af góðu fólki!

Ólafur Hannesson er kominn af góðu fólki. Foreldrar hans eru Þórhildur Ólafsdóttir og Hannes Sigurðsson á Hrauni í Ölfusi sem í áraraðir hafa staðið að rekstri fiskvinnslu og útgerðar í Þorlákshöfn. Illa er drengnum því í ætt skotið ef hann kann ekki að vinna. Taka til hendi við algeng störf við fisk og landbúnað. Við þurfum til forystu fólk sem getur unnið; mokað sig í gegnum skaflinn. Föðurfólk Ólafs er hinn stóri og kunni ættbogi sem kenndur er við Stóru-Sandvík í Flóa, afbragðsfólk sem víða hefur látið að sér kveða. Einhverjum kann að þykja fráleitt að róma fólk sakir hverra manna það sé. Sjálfum finnst mér það ekki. Við getum dregið margvíslegan lærdóm af ættfræðinni - því margt er líkt með skyldum eins og máltækið hermir!

Ólafur Hannesson

 

 


mbl.is Stefnir á þriðja sætið í Suðurkjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í rétttrúnaðarríkinu

Yfirlýsingar Vilhjálms Bjarnasonar koma ekki á óvart. Þegar meint góðæri var í hámarki var krafist skilyrðislauss rétttrúnaðar um ágæti fjármálafyrirtækjanna og stefnu þeirra. Engu var líkara en stjórnendur bankanna hefðu étið óðsmannsskít, svo vitnað sé til vestfirskrar málhefðar en þar merkir þetta orðatiltæki að menn vaði fram af gassagangi og án allrar fyrirhyggju. Nú þegar litið er til baka virðist hins vegar sem svo að flest í gagnrýni Vilhjálms Bjarnasonar hafi átt við rök að styðjast. Hann er maður sem þorir; og þannig menn einmitt þurfum við Íslendingar í þeim erfiðleikum sem nú þarf að glíma við. 
mbl.is Vildu Vilhjálm Bjarnason burt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vor við sæinn

Enn er miður vetur og langt að grænum grösum. Kuldaboli fer hamförum og bítur í kinnar hvers einasta manns. En lögmálinu samkvæmt vorar fyrst við sæinn. Úti við Gróttu var í dag bærilega hlýtt og gaman að ganga um. Fjöldi fólks var á rölti þarna á eiðinu - sem brosti og bauð góðan dag. Brátt fer veturinn að lina á tökum sínum - og eitthvað segir mér að í framhaldinu fari staða efnahagsmála eitthvað að skána. Síðustu mánuðir hafa verið líkastir heimsskautaleiðangri sem ég vona að fari að enda.

Grótta


Davíð í þriðju persónu

Öll viljum við halda sjálfsvirðingunni og standa meðan stætt er. Bréf Davíðs er ágætt dæmi um þetta. Sumt í bréfi hans til forsætisráðherra nær máli og er bærilega rökhelt en annað er skætingur og röfl. Og merkileg eru orð Davíðs um Ingimund Friðriksson sem hann segir "tákmynd fyrir ærlegan, traustan og gegnumvandaðan banka- og embættismann" og að goðgá sé að "flæma vammlausan embættismann úr starfi" eins og komist er að orði. Ber hér á því sérstaka viðhorfi að þeir sem gegna opinberum störfum skuli vera alfriðaðir, líkt og ernir og æðarfuglinn. Kúnstugast í bréfi Davíð er þó þegar hann talar upphafið um sjálfan sig í þriðju persónu. Af hverju segir maðurinn ekki einfaldlega ÉG.  
mbl.is Davíð segir ekki af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott innlegg Sigmundar

Sigmundur Ernir átti góða spretti í viðtalinu hér á Mbl, þar sem hann nefndi þau mál sem hann hyggst beita sér fyrir nái brautargengi í pólitíkinni. Nefndi þar meðal annars hagsmuni fjölskyldnanna í landinu; fólksins sem á börn í skóla og þarf að vinna langan vinnudag til að sjá sér og sínum farborða. Sagði Sigmundur að þetta fólk ætti sér fáa málsvara í hagsmunagæslunni. Þetta er fínt innlegg. Þegar allt kemur til alls er hver sjálfum sér næstur þegar kemur að því að taka viðhorf til fólks og flokka. Að geta búið sæmilega að fjölskyldunni er það sem skiptir fólk mestu og í raun má segja að fjölskyldupólitíkin í sinni víðustu merkingu hafa snertiflöt í öllum öðrum málaflokkum. Viðhorf Sigmundar eru í raun og sann prýðileg og að mínu skapi - skárri en harðlífið sem svo margir brydda uppá.

 


mbl.is Sigmundur Ernir í pólitíkina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Njótum og skjótum!!!

Njótum og skjótum, sagði Einar Kr. Guðfinnsson í viðtali fyrir nokkrum árum þegar hann var spurður sem formaður Ferðamálaráðs hvort leyfa ætti hvalveiðar hér við land. Efnislegt inntak í svari hans var, að væri rétt að málum staðið sköðuðu hvalveiðar ekki hagsmuni ferðaþjónustunnar. Þetta hefur líka komið á daginn; ferðamönnum sem hingað koma hefur fjölgað jafnt og þétt og þeir voru til dæmis aldrei fleiri en í fyrra þrátt fyrir málamyndaveiðar á hval fyrir nokkrum árum. Reyndar fer umræðan um hvort halda skuli eða sleppa í hvalveiðimálum að verða afskaplega þreytandi. Við erum alltaf á sama staðnum. Best fer á því að brýna skutlana, halda á miðin og veiða þessi kvikindi. Láta arka að auðnu - og vísast mun skaðinn enginn verða. Við Íslendingar eigum að nýta okkar eigin auðlindir með sjálfbærum hætti en ekki sitja fastir í prísund öfgasinnaðra umhverfistalíbana eða verkalýðshreyfingarinnar. Læt hér fylga með nokkrar myndir sem voru teknar þegar hvalirnir voru veiddir haustið 2006, en þá mætti múgur og margmenni í Hvalfjörðinn - þar á meðal Einar Bolvíkingur Guðfinsson sem þá var ráðherra sjávarútvegsmála.

Picture 9521Picture 9401


mbl.is Hvalveiðar í sátt við ferðaþjónustu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband