Sveitarstjóra sparkað!

Um áramótin var sveitarstjóranum í Eyjafjarðarsveit, Guðmundi Jóhannssyni, vikið úr starfi og var þar meðal annars borið við umdeildum bloggfærslum hans. Og nákvæmlega sama hefur gerst nú austur í Gnúpverjahreppi. Sigurði Jónssyni er sagt upp störfum meðal annars fyrir að segja skoðanir sínar á mönnum og málefnum á þeim bráðskemmtilega vettvangi sem Moggabloggið er. Þótt fleiri mál séu tínd til sem ástæða þess að sveitarstjórinn er látinn fjúka eru bloggfærslurnar efalítið meginskýringin, því sumu fólki ógar við tjáningarfrelsinu sem í eðli sínu er ógn við útúrboruleg sjónarmið. Gnúpverjar og Skeiðamenn eiga að sjálfsögðu að leyfa öllum sjónarmiðum að njóta sín - og væri ég í þeirra hópi hefði ég fremur lofað sveitarstjórann en sparkað honum.

 


mbl.is Sveitarstjóra sagt upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svavar kann að syngja!

Þegar Lilli klifurmús var kominn upp í tré og Mikki refur beið glaðhlakkalegur fyrir neðan tók músin upp á því að syngja. Og viti menn: refurinn steinsofnaði og þannig tókst músinni að læðast burt. Einhverri viðlíka hertækni þurfa Íslendingar að beita nú þegar við erum föst í hinni ægilegu gildru Ice Save reikninga Landabankan. Söngurinn sefar. Mér finnst því vel til fundið að fá Svavar í verkefnið; hinn reffilega ambassador við Eyrarsund sem mér hefur þótt í því hlutverki vera sem höfðingi á stórbýli sem tekur svo lagið í réttunum. Bretarnir falla fyrir þessum dáðadreng úr Dölunum.

Picture 573


mbl.is Svavar stýrir Icesave nefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skólaminningar frá Selfossi

Það er svo undarlegt að ég minnst ekki eineltis á þeim árum þegar ég var í skóla á Selfossi. Hins vegar hefur mælikvarðinn breyst. Þó einhver færi grátandi heim eftir að hafa verið misþyrmt af hrekkjusvínunum þótti það ekkert tiltökumál og má þar vísa til orðatiltækisins um að enginn sé annars bróðir í leik. Ég get svo bætt því við hér í framhjáhlaupi að einstaka kennarar sem við skólana á Selfossi á þessum tíma, á árunum um og eftir 1980, hefðu betur fengist við annað en að starfa með börnum og unglingum. Sumir þeirra voru fullkomlega kolómögulegir í starfi þótt í þeirra hópi væru líka hæfileikaríkir kennarar með hjarta úr gulli. Þar nefni ég sérstaklega minn gamla skólastjóra; Óla Þ. Guðbjartsson. Vænta má að innan tíðar - þess vegnar síðar í dag - muni þeir sem málum ráða á Selfossi koma með einhverja yfirlýsingu þar sem sagt verður að ástandið sé ekki svona slæmt, fréttaflutningur þessi sé óábyrgur, skaði metnaðarfullt skólastarf og svo framvegis. Ég gef ekkert fyrir slíkt. Veit að Mogginn fer ekki fram með svona fréttir nema hafa alla heimildavinnu í lagi. Þegar allt kemur til alls er raunar fínt að fá þetta fram; umræða er súrefni opins og lýðræðislegs samfélags og sannleikurinn gerir okkur frjáls.


mbl.is Einelti látið viðgangast á Selfossi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fiskur undir steini

Í þessari stuttu klausu liggur fiskur undir steini. Þegar Kjartan Ólafsson lýsir því yfir að hann vilji "ákveðna endurnýjun" á framboðslista Sjálfstæðismanna í Suðurlandskjördæmi þýðir það á mannamáli að hann vill burt með nokkra af meðframbjóðendum sínum: Árna Mattthiesen, Björk Guðjónsdóttur og Árna Johnsen sem ég nefni einhver nöfn. Kjósendur eiga því einfaldlega kröfu á að frambjóðandinn tali skýrt. Annars er tilkynning frambjóðandans afskaplega rýr í roði; hann talar um að leiða "listann til góðra verka," eins og það er orðað. Auðvitað vilja allir styðja svo vel meinandi mann - en hver eru góðverkin? Er mikið svigrúm til eins né neins þegar munu Íslendingar synda í skuldasúpu um ókomna tíð. Vinur minn, Kjartan í Hlöðutúni, þarf að útlista stefnumál sín betur.


mbl.is Sækist eftir 2. sæti í Suðurkjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ærlegur Atli

Stjórnarfar í Bretlandi byggist á hefðum sem skapast hafa á löngum tíma. Ekki þarf að dveljast langan tíma í Lundúnaborg til að upplifa nið aldanna og þá sterku menningarhefð sem mótar borgarbraginn. Eftir því sem fleiri fréttir koma fram um háttalag útrásarvíkinganna svonefndu má því ljóst vera að ríkisstjórnin breska setti ekki hryðjuverkalögin á Íslendinga af því einu að Brown og Darling voru í geðvonskukasti. Lánveitingar til vildarvina, arðgreiðslur og hressilegar útborganir úr peningamarkaðsstjóðum með þeim afleiðingum að þúsundir Breta voru logsviðnir fjárhagslega gáfu stjórnvöldum í Bretlandi ærið tilefni að láta hart mæta hörðu. Í raun er samúð mín í þessu máli með Bretum en ekki minni eigin þjóð. Atli Gíslason er eins og ég þekki hann maður réttsýnn og ærlegur. Ég er sammála þeirri skoðun hans að setja eigi þá sem öllu réðu í bönkunum á válista og í viðskiptabann. En þá er líka rétt að þingmanns beiti sér fyrir lagasetningu sem gerir útrásarvíkingana útlæga. Ætti slíkt í raun og sann að vera hægur vandi nú þegar Vinstri grænir, flokkur Atla, á aðild að ríkisstjórn.

 


mbl.is Útrásarvíkingana á válista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orðfærið endurspeglar sálarlífið!

Man einhver eftir því hvað Grétar Mar Jónsson hefur lagt af mörkum á Alþingi. Hefur hann komið með tillögur sem hafa vakið athygli, verið ígrundaðar og til þess fallnar að bæta þjóðfélagið. Ég man ekki eftir neinu slíku. Fyrst og síðast hefur mér fundist hann vera bullukollur og masari. Ræður hans bera vitni um það og orðfærið endurspeglar jafnan sálarlíf manna. "Við stöndum frammi fyrir því að allir okkar ágætu hagfræðingar og stjórnmálamenn sem hafa komið að stjórn efnahagsmála, svo maður segi það nú bara á íslensku, hafa skitið upp á bak á sér," sagði Grétar Mar í ræðu á Alþingi fyrr í vikunni. Við þurfum ekkert að gera á Alþingi sem geta ekki orðað hlutina smekklegar er raun ber viti. Læt hér fylgja með mynd af þingmanninum sem ég tók á Austurvelli sl. haust.

 

GMJ


mbl.is Grétar Mar vill leiða listann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Opið bréf til Örlygs og Þórarins

Kannski er ég farinn að sjá mína eigin skólagöngu í ljóma fortíðarinnar, en ég minnst þess ómögulega að ástandið í Fjölbrautaskóla Suðurlands hafi verið jafn ómögulegt og sagt hefur verið frá í fréttum síðustu daga þegar ég var þar. Vitanlega hefur samfélagið breyst á þeim tuttugu árum sem síðan eru liðin. Háttalag nemenda er vænanlega annað nú en þá og umburðarlyndi samfélagsins gagnvart hverskonar ofbeldi meira. En svo á ekki að þurfa að vera. Við eigum að vera góð hvort við annað - og til þess að það fróma markmið nái fram að ganga þurfa þeir sem málum stjórna í Fjölbrautarskóla Suðurlands að taka á sig rögg og reka rakkarapakkið úr skóla. Ég skora hér með á Örlyg Karlsson skólameistara, og ljúfmennið úr Eyjum, Þórarinn Ingólfsson aðstoðarskólameistara, að gera nú ærlegan skurk svo varmenni í hópi nemenda valdi ekki meiri skaða en þegar er orðinn. Sem gamall nemandi í skólanum finnst mér ég eiga kröfu á slíku - og tel mig þar raunar mæla fyrir munn hundruða ef ekki þúsunda sem numið hafa í hinu ágæta menntasetri í Flóanum.

 


mbl.is Ráðist með grjóti á 16 ára pilt í FSu á Selfossi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að mála mynd af þjóðfélagi!

Er ekki sagt um pólitíkina í dag að til staðar sé rík krafa um endurnýjun? Og að við þurfum að fá til leiks fólk sem hefur ráð undir rifi hverju og er þess megnugt að losa þjóðinni út úr þeirri hræðilegu prísund sem við erum komin í. Þeir mætu myndlistarmenn sem voru kennarar Árna Björns eru allt velþekktir myndlistarmenn. Myndir Hrings Jóhannessonar eru til dæmis ljómandi fallegar. Sama get ég sagt um málverk Árna Björn sem hann hefur stundum sýnt í anddyri Laugardalslaugar. En ég er samt ekki viss um að kunnátta í kúnstverki sé endilega það sem þarf ef menn ætla að breyta samfélaginu og bæta það. Til að takast slíkt risaverkefni á hendur þarf fólk að hafa sterkar skoðanir og verksvit - svo raungera megi hugsjóninar. Þannig nefnir Árni Björn hvergi hugmyndir sínar og stefnumál, málar ekki mynd af því þjóðfélagi sem hann sjá og skapa sem ætti þó að vera honum leikur einn.

 


mbl.is Býður sig fram í forvali VG í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frumkvöðlarnir miklu!

Í umfjöllun síðustu ára hefur tíðum mátt sjá helstu mógúla viðskiptalífsins kallaða frumkvöðla. Mörg nöfn mætti tína til í þessu sambandi, ég man þó sérstaklega eftir umfjöllun um Rannveigu Rist undir þessum formerkjum. Að kalla hana frumkvöðul er hins vegar fráleit nálgun, hún hefur væntanlega verið enn á barnsaldri þegar álverið í Straumsvík var reist. Fleiri sem hafa fengið ámóta "stjörnuumfjöllun" mætti nefna. Sigurður Helgason var hins vegar brautryðjandi í raun og sann; í hans tíð sem stjórnandi Loftleiða í Bandaríkjunum markaði fyrir tækið sér sess sem hippaflugfélagið sem bauð ódýrustu fargjöldin yfir Atlantshafið. Þáttur Sigurður er hér að sönnu afar stór, en rétt er að halda til haga nöfnum fleiri svo sem Alfreðs Elíassonar forstjóra félagsins og Kristjáns Guðlaugssonar stjórnarformanns. Eru þá margir ónefndir.

 


mbl.is Sigurður ruddi lággjaldaflugfélögum braut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Upphaf niðurskurðar

Stjórnendum Landspítalans er gert að skera niður um 2,6 milljarða kr. á árinu. Fram kom í hádegisfréttum RÚV að þetta væri aðeins upphafið að því sem koma skyldi, niðurskurðurinn væri rétt að byrja. Forstjóri spítalans, Hulda Gunnlaugsdóttir, sagði efnislega í viðtali að öllum steinum yrði velt við. Ætla má þó að fyrsta kastið muni aðgerðirnar beinast að ræstingafólkinu og öðrum þeim sem vinna erfiðustu og verst launuðu störfin. Jafnan er fyrst ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur. Stóra spurningin er hins vegar sú hvort launakjör lækna verði endurskoðuð - en ekki er óalgengt að þeir séu með tvær til þrjár milljónir í laun á mánuði og jafnvel enn meira. Engum heilbrigðisráðherra hefur til þessa tekist að hemja sjálftökulið sérfræðilækna. Niðurskurður mun leiða margt slæmt af sér. Í því sambandi er rétt að velta fyrir sér hvort fyrsta grein laga um heilbrigðiskerfið, þar sem segir að Íslendingar eigi rétt á fyrsta flokks þjónustu, geti staðist, þegar framlög til heilbrigðisstofnana eru skorin svo mikið niður sem fyrirhugað er.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband