Orðfærið endurspeglar sálarlífið!

Man einhver eftir því hvað Grétar Mar Jónsson hefur lagt af mörkum á Alþingi. Hefur hann komið með tillögur sem hafa vakið athygli, verið ígrundaðar og til þess fallnar að bæta þjóðfélagið. Ég man ekki eftir neinu slíku. Fyrst og síðast hefur mér fundist hann vera bullukollur og masari. Ræður hans bera vitni um það og orðfærið endurspeglar jafnan sálarlíf manna. "Við stöndum frammi fyrir því að allir okkar ágætu hagfræðingar og stjórnmálamenn sem hafa komið að stjórn efnahagsmála, svo maður segi það nú bara á íslensku, hafa skitið upp á bak á sér," sagði Grétar Mar í ræðu á Alþingi fyrr í vikunni. Við þurfum ekkert að gera á Alþingi sem geta ekki orðað hlutina smekklegar er raun ber viti. Læt hér fylgja með mynd af þingmanninum sem ég tók á Austurvelli sl. haust.

 

GMJ


mbl.is Grétar Mar vill leiða listann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband