Fiskur undir steini

Í þessari stuttu klausu liggur fiskur undir steini. Þegar Kjartan Ólafsson lýsir því yfir að hann vilji "ákveðna endurnýjun" á framboðslista Sjálfstæðismanna í Suðurlandskjördæmi þýðir það á mannamáli að hann vill burt með nokkra af meðframbjóðendum sínum: Árna Mattthiesen, Björk Guðjónsdóttur og Árna Johnsen sem ég nefni einhver nöfn. Kjósendur eiga því einfaldlega kröfu á að frambjóðandinn tali skýrt. Annars er tilkynning frambjóðandans afskaplega rýr í roði; hann talar um að leiða "listann til góðra verka," eins og það er orðað. Auðvitað vilja allir styðja svo vel meinandi mann - en hver eru góðverkin? Er mikið svigrúm til eins né neins þegar munu Íslendingar synda í skuldasúpu um ókomna tíð. Vinur minn, Kjartan í Hlöðutúni, þarf að útlista stefnumál sín betur.


mbl.is Sækist eftir 2. sæti í Suðurkjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband