15.2.2009 | 13:27
Af sannri tilfinningu!
![]() |
Aldrei of blönk til að hugsa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.2.2009 | 12:56
Aftakan hefur farið fram!
Valgerður Sverrisdóttir var fyrst kjörin á þing árið 1987 þá í kjölfar frægs þings sem framsóknarmenn á Norðurlandi eystra héldu. Þar var Stefán Valgeirsson felldur úr sessi, en hann hafði verið þingmaður flokksins til fjölda ára. "Aftakan hefur farið fram," sagði Stefán og gekk úr flokknum. Valgerður yfirgefur nú hinn pólitíska vettvang eftir 22 ár á þingi; sigursælan og farsælan feril. Margir munu sakna hennar sem stjórnmálamanns, enda hættir hún með reisn á eigin forsendum - og engin er aftakan.
![]() |
Valgerður ekki í framboð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.2.2009 | 09:56
Að sjálfsögðu frétt
Meginhlutverk fjölmiðla er að endurspegla veröldina og greina frá atburðum hvers tíma. Sá handboltamaður sem hér er vitnað til, sagði á ákveðnum tímapunkti að handboltalið Stjörnunnar væri lélegt. Og þá er það viðhorf út af fyrir sig og að sjálfsögðu frétt. Þetta var skoðun mannsins á þeim tíma þegar fréttin birtist. Mér finnst hallærislegra en tali tekur þegar menn koma svona eftir á, segja ummælin hafa fallið í hita leiksins og svo framvegis. Sigurður Eggertsson getur að sjálfsögðu beðist afsökunar á orðum sínum en inntak yfirlýsingarinnar er slíkur reginmisskilningur á fjölmiðlun að hún "á engan rétt á sér," svo ég noti hans eigin orð.
![]() |
Yfirlýsing frá Sigurði Eggertssyni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.2.2009 | 21:12
Nýtt stjórnarmynstur í kortunum!
Í tímans rás hefur raunin jafnan verið sú að Vinstri grænir skora hátt í könnunum. Raunar aldrei jafn hátt sem á líðandi vetri enda var flokkurinn þá einstaklega heppinn með andstæðing; dáðlitla ríkisstjórn sem ekki tókst að hrinda bráðaaðgerðum í efnahagsmálum framkvæmd. Allt þetta átti sinn þátt í því að vinstri flokkarnir, sem skyndilega höfðu öðlast brimandi sjálfstraust, ákváðu að taka höndum saman um myndun ríkisstjórnar með fulltingi Framsóknar. Þeir skutu Sjálfstæðisflokknum aftur fyrir sig sem nú er skyndilega er kominn í stjórnarandstöðu og gerir það gott. Íhaldið rífur kjaft, hamast og djöflast gegn andstæðingum sínum og er kominn í þá aðstöðu að geta unnið bærilegan varnarsigur í kosningunum í vor. Vinstri grænir munu þegar landsmenn ganga að kjörborðinu þann 25. apríl tapa forðukenndu fylgi sínu af því þeir toppa alltaf á vitlausum tíma. Ný framboð eru enn ekki komin fram og við skulum afskrifa þau strax. Samfylkingin mun fá sæmilega kosningu í vor en Frjálslyndum blæðir út. Framsókn bætir vel vð sig rétt eins og Sjálfstæðisflokkurinn enda ekki ólíklegt að þessir flokkar taki upp samstarf að loknum kosningum. Sanniði til!!
![]() |
Stuðningur við Sjálfstæðisflokk og Samfylkingu eykst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.2.2009 | 20:56
Áburður æsir verðbólguna
Frétti um hækkun á áburðarverði leynir á sér. Til að standa undir þessum kostnaðarhækkunum þurfa bændur hærra verð fyrir afurðir sínar og þá lendir á neytendum að borga brúsann. Hærra matarverð hreyfir við vísitölu neysluverðs og æsir upp verðbólguna, sem ASÍ sem spáði reyndar að myndi lækka. Svona erum við föst í vítahring verðhækkana, líkum þeim sem gerðist á verstu verðbólguárunum milli 1980 og 1990.
![]() |
Áburður hækkar um helming |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.2.2009 | 10:08
Okkar maður í umferðinni
Fyrir tuttugu árum eða svo var í morgunþætti Rásar 2 alltaf pistill eldsnemma á morgnana sem hét Okkar maður í umferðinni. Þar var hringt í leigubílstjóra, Bjarna hetinn Pálmason, sem sagði stuttlega frá færð á götum, veðri, hvar væri hálka, hvort búið væri að ryðja þennan vegarspotta og svo framvegis. Þetta var innslag, ein til tvær mínútur, sem setti hlustendur á leið út í daginn algjörlega inn í málin. Af hverju setur ekki einhver útvarpsstöðin svona pistil aftur á dagskrá sína. Slíkt myndir vísast virka vel og ná betur til hlustenda en sú upptalning frá Vegagerðinni sem hér er vísað til.
![]() |
Vegfarendur beðnir um að sýna aðgát |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.2.2009 | 23:06
Jósepsspítali og Jo Grímsson
Þegar sérfræðingur fær 24 milljónir kr. fyrir ígildi 60 % starfs má ljóst vera að sá er hæfileikaríkur í meira lagi. Einhverra hluta vegna rifjast upp fyrir mér vegna þessa lítil saga sem skal nefnd í framhjáhlaupi. Þannig var það einhverntíma fyrir eða um 1970 að Jósafat Arngrímsson kaupsýslumaður, betur þekktur sem Jo Grimsson, sem þá bjó suður með sjó, hélt úti vinnuflokki sem starfaði á Keflavíkurflugvelli. Karlarnir sem hjá honum störfuðu stunduðu iðju sína sjaldnast skemur en 24 tíma á sólarhring og slóu ekki slöku við svo dögum skipti. Eða svo var látið uppi! Fyrir vinnu þeirra sendi Jo reikning til hersins sem borgaði með bros á vör, eða þar til offísjerarnir spurðu hvort þeir gætu náðarsamlegast fengið að sjá ofurmennin, sem gátu unnið án þess að slá slöku við dögum saman og þurftu aldrei að sofa. Þá kom hins vegar babb í bátinn; mennirnir voru aldrei til og reikningarnir frá mr. Grímssyni voru fyrir vinnu sem aldrei var innt af hendi. Einmitt í ljósi þessarar sögu finnst mér sú spurning áleitin hvort eins sé farið með læknana í Hafnarfirði og verktakagengið á Keflavíkurflugvelli; að stunduð sé sjálftaka í stórum stíl. Að fá 24 millj. kr. greiðslu fyrir rétt rúmlega hálft starf er vel í lagt enda þó svo verðugur sé verkamaðurinn launanna, eins og máltækið hermir
![]() |
Læknar sem vinna miklu hraðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.2.2009 | 21:39
Skera göt í velferðarnetið
Rækilegt tiltekt í ríkisrekstri var meðal þeirra krossa sem íslensk stjórnvöld þurftu að undirgangast þegar þau sögðu sig til sveitar hjá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum. Öllum steinum er velt við og þó er niðurskurðurinn bara rétt að byrja. Í fjárlögum ársins 2010 verður skorið enn meira niður en er raunin á þessu ári.
Endurskoðun á ýmiskonar grunnþjónustu samfélagsins er framundan; velferðarkerfinu í víðustu merkingu. Niðurskurður er þó ógerlegur nema í sátt við samfélagið - ekki er hægt að stýfa af eða legga niður stofnanir nema málið hafi áður verið rætt út frá öllum vinklum. Því slær það mig afskaplega illa þegar forsætisráðuneytið sendir frá sér tilkynningu og segir að í "... meginatriðum gangi vonum framar að framfylgja þeirri metnaðarfullu sem stjórnvöld settu fram í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um endurreisn íslensks efnahagslífs."
Um þetta vildi ég sagt hafa. Þegar þrjátíu menn hafa sett landið á hausinn; hvernig getur endurreisn sem byggist á því að skera göt í velferðarnet almennings verið mentaðarfull.
![]() |
Peningamálastefnu ekki breytt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.2.2009 | 09:29
Lítil kreppusaga
Hver lítur sínum augum á silfrið. Konan stendur í skilum með allt sitt en verðbólgan hefur hækkað lánin upp í hæstu hæðir. Niðurstaðan er sú að áhvílandi skuldir á íbúðinni eru orðnar meiri en andvirðið. Eins og hjá þúsundum annara Íslendinga. Slíkt eru engin ný tíðindi. Að krakkar þurfi að deila sama herbergi ætti ekki að vera nein frágangssök. Ef börnin líða ekki skort og eiga góða að, er þetta allt í fína lagi. Og svo vænkast hagur í fyllingu tímans. Þá geta þeir sem þurfa komast í stærri íbúð og margir munu minnast yfirstandandi krepputíðar sem innihaldsríks tíma þegar þegar fundið var upp á mörgu skemmtilegu sem lítið kostar.
![]() |
Föst í of lítilli íbúð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.2.2009 | 16:23
Þegnskyldu lýkur
Einhverra hluta vegna greip mig strax sú tilfinning þegar þeir Magnús Gunnarsson og Valur Valsson voru kynntir til sögunnar sem formenn bankaráða ríkisbankanna tveggja að þeir væru ekki í starfinu af heilum hug. Tækju verkefnið að sér sem tímabundna þegnskyldu. Báðir voru þeir að mestu horfnir út af sviði viðskiptalífsins og hafa haldið sig til hlés síðustu árin. Allt hefur þetta komið á daginn, þeir eru báðir af förum og bera við pólitískum óróa. Annars finnst mér kyndugt að þeir Magnús og Valur koma jafnan fram sameiginlega í þessu máli enda þó Kaupþing og Glitnir séu sitthvort fyrirtækið. Framganga þeirra er ekki trúverðug.
![]() |
Standa við afsagnir sínar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |