Færsluflokkur: Bloggar
6.3.2009 | 11:14
Undarlegir Sandgerðingar
Í annari grein laga um grunnskóla segir, að hlutverk skólanna sé að stuðla að alhliða þroska allra nemenda og undirbúa þátttöku þeirra í lýðræðisþjóðfélagi. Skuli starfshættir mótast af umburðarlyndi og kærleika, ábyrgð, umhyggju, sáttfýsi og virðingu fyrir manngildi. Um þetta má segja að hrikalegt eineltismál rímar alls ekkert við umburðarlyndi né kærleika. Sömuleiðis er mjög undarlegt að starfsfólkíð harmi sjálfsagða umfjöllun um einelti. Að þegja yfir slíku er ekki til þess fallið að auka þroska nemenda eða búa þá undir þáttur í lýðræðislegu þjóðfélagi, þar sem frjáls umræða og eðlilegur fréttaflutningur af því sem miður fer - og sömuleiðis hinu jákvæða - er nauðsynlegur. Fréttir af máli þessu voru almennt hófstillar en skiljanlega sveið mörgum undan, því sérhver er sannleikanum sárreiðast. Að öðru leyti má segja um ályktun starfsfólks Sandgerðisskóla að þetta er ekki í fyrsta sinn og væntanlega ekki það síðasta sem reynt er að skjóta sendiboða vondra tíðinda.
![]() |
Viðbrögð skólastjórnenda til fyrirmyndar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.3.2009 | 21:05
Ef frumlegt skal byggja!
Enginn getur breytt fortíðinni þó vissulega hafi margur gert tilraunir til slíks, þá aðallega með sjálfsblekkinum ef ekki lygi. Hins vegar er okkur bráðnauðsynlegt að þekkja fortíðina og vitna til hennar, svo við getum dregið lærdóm af mistökum þeirra sem ruddu brautina. Nú er í sjálfu sér alveg bráðgott að svonefnd endurreisnarnefnd Sjálfstæðisflokkinn ætli að horfa til framtíðar. Ekki veitir af. Hins vegar er hrikalega illt í efni ef ekki að líta á það sem gerst hefur, það er atburði síðustu mánuða sem verða þjóðinni hrikalega dýrkeyptir. Ég hélt einmitt að endurreisnarnefndin þyrfti mjög nauðsynlega að kryfja orðna hluti til mergjar því "að fortíð skal hyggja ef frumlegt skal byggja," eins og segir í ljóðinu.
![]() |
Baðst afsökunar á mistökum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.3.2009 | 09:11
Olían og gullskipið
Hætt er við að glýja muni blinda olíuleitarmenn á Drekasvæðinu og að Össur Skaphéðinsson iðnaðarráðherra fari fram úr sjálfum sér í stórkarlalegum yfirlýsingum. Olíuleitin og raunar margt annað í íslensku þjóðfélagi á undanförnum árum minnir mig stundum á leitina að "Gullskipinu" sem svo var nefnt. Skipið sem strandaði austur á Skeiðarársandi árið 1667 hét Het Wapen wan Amsterdam og átti gull að vera um borð. Árið 1983 hófst leitin fyrir alvöru og var svo mikið undir lagt að veitt var sérstök ríkisábyrgð vegna þeirra fjármuna sem þurfti. Slegið var upp stálþili utan um staðinn þar sem "gullskipið" átti að vera, skv. mælingum, og þegar farið var að dæla upp úr lóninu innan þilsins fundu menn kryddlykt, sem kom heim og saman við heimildir um að stór hluti farms gullskipsins væri krydd sem flytja átti frá Vestur-Indíum til Hollands. Þegar búið var að tæma lónið og grafa frá flakinu kom hins vegar í ljós að "gullskipið" var þýskur togari og það eina sem fannst var ómerkilegt járnarusl. Þessa sögu finnst mér rétt að rifja upp hér og nú þegar gulleitin er að hefjast - því stundum er gullið aðeins grjót og olía er sýnd veiði en ekki gefin
![]() |
Auknar líkur á olíu á Drekasvæðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.3.2009 | 17:09
Ódýr syndaaflausn!
Inntak yfirlýsingar endurreisnarefndar Sjálfstæðisflokksins er í grunninn hið sama og Bubbi Morthens söng um árið; Ekki benda á mig! Mér segist svo hugur að gild rök megi fyrir því færa að bæði fólk og eins sú stjórnarstefna Sjálfstæðisflokksins, sem fylgt hefur verið síðustu átján árin, hafi brugðist. Veruleiki flókinna mála er sjaldnast svo einfaldur að hægt sé að koma með afdráttarlausar yfirlýsingar, hvað þá í risavöxnum harmleik eins og hruni íslenska efnahagskerfisins. En fyrst virðuleg nefnd spekinga við háborðið í Valhöll veitir flokki sínum afdráttarlausa syndaaflausn og segir einstaka menn bera ábyrgð á hruninu - væri gaman að vita hvaða menn nákvæmlega endurreisnarnefndin hefur í huga. Allt á að vera uppi á borðinu og mikilvægt er að tala skýrt.
![]() |
Stefna brást ekki, heldur fólk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.2.2009 | 11:24
Tímabundið!
Orðfæri Ingibjargar Sólrúnar er býsna merkilegt. Á blaðamannafundinum sem fjallað er um í viðhengdri frétt talar hún um tímabundin veikindi sín. Svona getur engin talað. Enda þótt læknar gefi góðar vonir um batahorfur er aldrei hægt að vera svo fullkomlega viss um þróun mála, að hægt sé að fullyrða að bata verði náð innan tiltekins tíma . Við vitum aldrei hvaða stefnu málin taka - hvort sóttin elnar eða dvín. Við höfum ekki forlögin á valdi okkar og veikindi geta þróast á alla vegu. Í veikindastríði er auðmýktin er jafn mikilvæg og bjartsýnin. Ingibjörgu Sólrúnu óska góðs bata og alls hins besta. Hún er valkyrja og sannarlega vona ég að veikindi séu aðeins tímabundin.
![]() |
Ingibjörg býður sig fram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.2.2009 | 18:43
Stórkostlega hallærislegt!
Fjölmennt starfslið vinnur í ráðuneytinum; fólk sem hefur víðtæka reynslu og góða þekkingu á hinum aðskiljanlegustu málum. Stundum er hins vegar bráðnauðsynlegt að fá utanaðkomandi fólk í einstaka verkefni; til dæmis þegar gera þarf úttekt á málum og velta við hverjum steini. Gildir þar að glöggt sé gests augað. Í einkarekstrinum eru svona vinnubrögð alsiða og þar þykir raunar sjálfsagt mál að útvista þeim verkþáttum sem ekki eru á kjarnasviði viðkomandi fyrirtækis. Slíkt gefur yfirleitt mjög góða raun. Þess vegna finnst mér stórkostlega hallærislegt þegar aðkeypt ráðgjöf í ráðuneytunum er gerð tortyggileg, þótt vissulega sé á stundum hægt að skrifa djúsí fréttir um meinta glæpi í því sambandi.
![]() |
Menntamálaráðuneytið greiddi 9 milljónir til verktaka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.2.2009 | 15:37
Ólafur F. og Vilmundur
Ólafur F. Magnússon fer mikinn í borgarstjórn og stundar leiftursóknir í allar áttir. Sérstaklega beinast þær gegn Framsóknarflokknum og Óskari Bergssyni. Stundum minnir Ólafur mig á Vilmund Gylfason sem sá djöfla í hverju horni þegar minnst var á Framsókn og hafði uppi harða gagnrýni á flokkinn út af einu og öllu. Og við þekkjum sögu Vilmundar. Er hér rétt að hafa í huga þau frægu orð Karls Marx að sagan endurtaki sig jafnan tvisvar: í fyrra skiptið sem harmleikur en í því síðara sem farsi eða skrípleikur.
![]() |
Krefst rannsóknar á hagsmunatengslum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.2.2009 | 12:09
Gripið í geldingatangirnar!
Góðir menn fá alltaf vinnu, hefur stundum verið sagt. Dýralæknirinn Árni þarf engu að kvíða. Er með góða menntun og í viðtali fyrir fáum misserum sagðist hann enn eiga geldingatangirnar. Hann getur því gripið í hrossalækningar, ef ekki vill betur. Árna hef ég þekkt lengi og hef sem blaðamaður alltaf átt við hann fín samskipti. Hef þannig skynjað að sem stjórnmálamaður hefur hann svo sannarlega viljað sínu samfélagi allt hið besta, þótt gagnrýnin hafi oft verið hörð og ómálefnaleg.
![]() |
Nú fer ég að líta í kringum mig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.2.2009 | 11:14
Kvótapresturinn Karl
Morgunblaðið er stór og fjölmennur vinnustaður og blaðið sjálft berst stórum hluta landsmanna á hverjum degi. Að tekist hafi að tryggja stórum hópi fólks áframhaldandi vinnu og að mikilvæg þekking við að gefa út fínt dagblað glatist ekki, skiptir öllu. Kvótakerfið í þessu sambandi er algjört aukaatriði, enda þótt einstaka menn séu botnfrostnir og telji meint rangindi þess upphaf og endi alls hins vonda í íslensku þjóðfélagi. Slíkt er að mínum dómi mikil einföldun og kvótapresturinn Karl V. Matthíasson er á miklum villigötum. Í tímans rás hefur Morgunblaðið verið opinn greinum um hin ólíku sjónarmið og því óþarfi, að svo komnu máli, að bera kvíðboga gagnvart nýjum eigendum.
![]() |
Gagnrýnir kaup sjávarútvegsmanna á Morgunblaðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.2.2009 | 09:11
Mogginn er ómissandi!
Óskar Magnússon hefur til þessa þótt nokkuð farsæll sem stjórnandi þeirra fyrirtækja þar sem hann hefur komið að málum; svo sem Hagkaup, Vodafone og TM. Það verður spennandi að sjá hvaða áherslur Óskar - og lagsmenn hans - marka í rekstri Morgunblaðsins. Stóra verkefnið er auðvitað tiltekt í fjárhag Árvakurs; blása lífi í reksturinn til nýrrar sóknar. Fyrirtæki sem skuldar fjóra til fimm milljarða þarf mikils með. Hvað varðar svo Moggann sjálfan þá hefur löngum verið sagt að aldrei eigi að breyta blöðum; heldur þróa þau. Koma breytingunum í gegn á löngum tíma, helst án þess að lesendur verði þeirra varir. Það hefur Mogganum jafnan tekist sem er auðvitað hluti af styrk hans. Við skynjum fæst að Morgunblað dagsins í dag er gjörólíkt því sem var fyrir fimm eða tíu árum. Sjálfum er mér blaðið ómissandi. Er því ánægður með aðkomu nýrra fjárfesta sem ég veit að eru skynsemdarmenn með báðar fætur á jörðinni; en einmitt þannig fólk þurfum við til að leiða endurreisnina sem svo kölluð.
![]() |
Þórsmörk kaupir Árvakur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |