Tímabundið!

Orðfæri Ingibjargar Sólrúnar er býsna merkilegt. Á blaðamannafundinum sem fjallað er um í viðhengdri frétt talar hún um tímabundin veikindi sín. Svona getur engin talað. Enda þótt læknar gefi góðar vonir um batahorfur er aldrei hægt að vera svo fullkomlega viss um þróun mála, að hægt sé að fullyrða að bata verði náð innan tiltekins tíma . Við vitum aldrei hvaða stefnu málin taka - hvort sóttin elnar eða dvín. Við höfum ekki forlögin á valdi okkar og veikindi geta þróast á alla vegu. Í veikindastríði er auðmýktin er jafn mikilvæg og bjartsýnin. Ingibjörgu Sólrúnu óska góðs bata og alls hins besta. Hún er valkyrja og sannarlega vona ég að veikindi séu aðeins tímabundin.

 


mbl.is Ingibjörg býður sig fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband