Kominn tími til

Kominn tími til, kynni einhver að segja. Undarlegt má telja að stjórnendur leikskóla Reykjavíkurborgar hafi talið ógerlegt að segja starfsmanni upp störfum þó svo brot hans gagnvart skjólstæðingi sínum væri alvarlegt. Enn kynlegri hending er, að í umræddu máli hafi þeir sem leikskólamálum stjórna ekki gengið fram og rekið starfsmanninn fyrr en málið var komið í fjölmiðla, sem aftur endurspeglaði sleifarlagið. Á stundum er í myrkviðum hins opinbera kerfis gerð sú krafa til þeirra sem órétti eru beittir að leyst skuli úr málum viðkomandi í grænum hvelli, að því tilskyldu að ekki sé farið með málið í fjölmiðla. Slíkt er miður, enda er frjáls umræða súrefni lýðræðislegs samfélags.

 


mbl.is Hefur verið sagt upp störfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband