21.1.2009 | 22:22
Litli karlinn
Varaformaður Samfylkingarinnar, Ágúst Ólafur Ágústsson, talar eins og sá sem valdið hefur. Vissulega endurspegla krafa hans um kosningar viðhorf margra í hans flokki, en yfirlýsingin hefur þó sáralitla vigt. Fyrir framvindu málsins skiptir öllu hver eru viðhorf Össurar, Lúðvíks, Björgvins - og svo Ingibjargar Sólrúnar þegar og ef hún kemur aftur inn í pólitíkina. Held að ömurlegt sé að vera í stöðu Ágústs Ólafs. Að vera næstur formanni að völdum formlega séð en vera þegar allt kemur til alls litli karlinn í flokknum og það er í minnst tvöfaldri merkingu þeirra orða. Þetta breytir samt ekki því, að öll rök hníga að því að kosið verði í vor. En verður Ágúst Ólafur aftur í framboði? Þarf Samfylkingin ekki að hreinsa út, eins og aðrir flokkar.
Eigum ekki að óttast þjóðina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook