Tignarleg Tindfjöll

Tindfjöll
Tindfjöll eru svipmikill og tignarlegur fjallaklasi sem sést víða til af Suðurlandssléttunni. Sjálfur Tindfjallajökull er lítill en víða standa hjúkar og tindar upp úr hjarnbreiðunni. Þeirra hæstur er Ýmir, 1.462 metrar á hæð. Á ferð um Rangárvallasýslu á gamlársdag staldraði ég við í Landeyjunum og virti fyrir mér fjöllin; sem vakað hafa í þúsund ár eins og Bubbi söng forðum. Hekla hefur yfir sér dulúðlegan blæ eldfjallsins. Sama gildir um Tindfjallajökul, sem eitt sinn var eldfjallakeila í líkingu við Öræfajökul, að því er fram kemur í Íslandshandbókinni sem út kom árið 1989. Þar segir sömuleiðis frá því, að góð skíðalönd séu á svæðinu og nokkrir fjallaskálar. Satt að segja hef ég þó aldrei heyrt um Tindfjallaferðir eða skíðaiðkan þar. En kannski munu  fleiri leggja þangað leið sína í framtíðinni. Ferðaþjónustunni í landinu er nauðsynlegt að brjóta ný lönd og dreifa álagi vegna síaukins fjölda ferðafólks sem um landið flakkar. Hin svipmiklu fjöll í austrinu gætu vakið áhuga margra.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband