Léttasótt í harðæri

Sú spá að draga muni úr barnsfæðingum hér á landi næstu árin er hæpin. Efalaust munu fjölmargir flytja af landi brott í leit að betri tækifærum til sómasamlegar lífsafkomu. Slíkt eru eðlileg viðbrögð í kreppu. Fólk er alltaf í leit að betra lífi. En þeir sem grúska í sögunni vita sömuleiðis að aldrei sem í styrjöldum og harðæri er ástarlíf mannskepnunnar fjörlegt. Fólk þarfnast yls og umhyggju. Ást dag og nótt og afleiðingin er léttasótt. Við þekkjum öll sögurnar af "ástandinu" í Reykjavík á stríðsárunum. Mér finnst því allt eins sennilegt að Íslendingum muni fjölga næstu árin meira en þær breytur sem Hagstofan byggir á í útreikningum sínum segja til um. 

 


mbl.is Dregur úr fólksfjölgum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband