Öfgakona kveður!

Á lokaspretti kosningabaráttunnar lét Kolbrún Halldórsdóttir frá sér fara, mjög svo undarleg ummæli um andstöðu sína við olíuvinnslu á Drekasvæðinu svonefnda. Strax og fréttin þar um var komin í loftið setti hún í bakkgírinn og sama gerði Steingrímur J. Sigfússon, enda þótt fréttamaður Stöðvar 2 þyrfti nánast að neyta aflsmunar til að fá afstöðu formannsins í ljós. Á tíu ára þingferli sínum hefur Kolbrún um margt verið, að mínum dómi, öfgafull í afstöðu sinni til umhverfismála, enda þótt ég efist ekki um góðan vilja hennar. En mér leiðast allir öfgar í hvaða átt sem þeir eru og finnst því meinlaust þótt krafta Kolbrúnar njóti ekki lengur við á Alþingi.

 


mbl.is Ráðherra féll af þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband