Hvað dóu margir í nótt?

Í fjölmiðlafræðum gildir sú einfalda regla að fréttir séu frávikið frá hefðinni - þegar fastir liðir eru ekki eins og venjulega. Í þessu ljósi vaknar sú spurning hvert sé raunverulegt fréttagildi þess atburðar sem hér segir frá í viðhengri frétt. Útkall slökkviliðs vegna smábruna þar sem einn er fluttur á sjúkrahús vegna hugsanlegrar reykeitrunar er engin frétt. Ergo: búið var að slökkva eldinn áður en brunaliðið mætti og sá sem á slysadeild fór var kannski með eitrun. Getur málið orðið ómerkilegra? En svona að öðru þar sem fiskur gæti leynst undir steini og frétt sem veigur er í; hvað dóu margir á Landspítalanum í nótt?

 


mbl.is Kviknaði í kodda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband